Björgunarsveitir fyrir austan fjall og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt eftir miðnætti til leitar að karlmanni á sextugsaldri sem saknað er frá dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Síðast spurðist til hans um klukkan 18:00 í gær.
Það var svo klukkan 10 í morgun sem björgunarsveitin Sigurvon var kölluð til leitar ásamt öðrum björgunarsveitum á Suðurnesjum, og fóru björgunarsveitarmenn strax í að undirbúa sig til leitar og voru 5 menn frá Sigurvon mættir í hús og tilbúnir að leggja af stað til Hveragerðis. Það var svo um klukkan 11 þegar hópur frá Sigurvon var að leggja af stað frá Sandgerði að skilboð bárust í talstöðvar að búið væri að finna manninn og var því útkallið afturkallaði í framhald á því.

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd Guðlaugur / sigurvon.is